Er starfsumhverfið eyðieyja?

Er starfsumhverfið eyðieyja?
Photo by Sander Weeteling / Unsplash

Microsoft Excel var fyrst gefið út fyrir 40 árum, er ekki eitthvað skrýtið að það sé ennþá svona vinsælt?

Vatnið finnur sér alltaf leið, sama má segja um skapandi og öflugt starfsfólk. Þess vegna er Microsoft Excel nánast alls staðar í nútíma skrifstofuumhverfi. Því veikbyggðari sem upplýsingakerfi og ferlar í umhverfi starfsmanna eru, því meira þurfa þeir að reiða sig á Excel.

Er þetta endilega slæmt? Ef ég þyrfti að velja aðeins eitt verkfæri til að vinna með gögn, fastur á eyðieyju, myndi ég sennilega velja Excel. En hvers vegna Excel? Hvað með Python eða R?

Excel spannar mikla breidd í virkni (sem ristir reyndar oft frekar grunnt) og er það gagnameðhöndlunarverkfæri sem hefur mesta útbreiðslu á heimsvísu. Lausleg athugun bendir til að 5% jarðarbúa noti Excel reglulega! Það eru 400 milljónir takk fyrir! Sumar heimildir tala reyndar um allt að 1,5 milljarð... Þessi fjöldi endurspeglast í því að það er varla til sá skrifstofustarfsmaður sem ekki hefur aðgang að Excel og notar forritið reglulega.

Þeir sem ná færni í Excel geta gert ótrúlegustu hluti, sótt gögn úr mörgum ólíkum áttum, umbreytt þeim, gert greiningar, fallegar skýrslur, forritað og í rauninni gert nánast hvað sem þeim dettur í hug. En þegar metnaðurinn verður of mikill geta þessar lausnir orðið fjötur um fót, verið hægvirkar, brothættar og þar fram eftir götunum. Þess vegna er mikilvægt að passa að lykilferlum og gögnum sé fundinn viðeigandi staður í sérhæfðum hugbúnaðarkerfum og Excel notkunin fari ekki úr böndunum.

Fyrir lengra komna er auðvitað freistandi að nota Python eða R sem er í raun nokkuð merkilegt. Hvort tveggja eru gömul forritunarmál (álíka gömul og Excel) og opinn hugbúnaður. R spratt úr akademískum tölfræðirannsóknum og Python úr akademískum rannsóknum á forritunarmálum. Auðvelt er að bæta virkni við þessi forritunarmál sem er svo gerð aðgengileg í pökkum. Þrjátíu árum seinna eða svo er hægt að sækja tæplega 20.000 R pakka og rúmlega 200.000 Python pakka! En vissulega eru þeir pakkar sem eru almennri notkun kannski frekar taldir í tugum fyrir hvert afmarkað viðfangsefni. Þeir sem þurfa að fara meira á dýpið en auðvelt er að komast með Excel, þeir sem vinna með mjög stór gagnasöfn og þeir sem geta, eru í mörgum tilfellum betur settir á eyðieyjunni með R eða Python, svo framarlega sem þeir mundu eftir að pakka uppáhaldspökkunum sínum.